Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Mikil umferð vegna landsleiks Íslendinga og Dana

5. september 2006

Búist er við mikilli umferð vegna landsleiks Íslendinga og Dana á Laugardalsvelli á morgun, miðvikudaginn 6. september, klukkan 18:05. Lögreglan í Reykjavík beinir því til knattspyrnuáhugamanna að þeir leggi tímanlega af stað og sýni þolinmæði. Ekki síst eftir leikinn en þá verður umferðin væntanlega enn þyngri.

Uppselt er á leikinn og verða áhorfendur tæplega 10 þúsund. Lögreglumenn verða á helstu gatnamótum í nágrenni vallarins og stýra umferðinni eftir því sem þörf krefur. Ljóst er að ekki geta allir vallargestir lagt bílum sínum við Laugardalsvöllinn en í nágrenni hans eru víða ágæt bílastæði. Gott veðurútlit er fyrir morgundaginn og því ætti engum að muna um að leggja smáspöl frá leikvanginum og ganga í fáeinar mínútur að vellinum. Formleg dagskrá vegna leiksins hefst með fjölskylduhátíð á gervigrasvellinum í Laugardal klukkan 16:00 á morgun. Þangað er upplagt að mæta fyrir þá sem hafa tök á.

Rétt er að taka fram að neysla áfengis og tóbaks er stranglega bönnuð á viðburðum Knattspyrnusambands Íslands. Að síðustu vill lögreglan geta þess að hún vonast eftir hagstæðum úrslitum í leiknum á morgun. Áfram Ísland!