Þessi frétt er meira en árs gömul
Miðborgarstöð
31. desember 2003
Eins og kunnugt er ákvað yfirstjórn lögreglunnar í Reykjavík að loka miðborgarstöð frá 1. nóvember sl. til 31. des. 2003. Var þetta gert í tilraunaskyni.
Að fenginni reynslu, og sérstaklega í ljósi jákvæðra viðbragða almennings, hefur nú verið afráðið að stöðinni verði endanlega lokað.
Þeirri starfsemi sem rekin var frá miðborgarstöð verður engu að síður sinnt áfram, nú frá aðalstöðinni við Hverfisgötu.
Reykjavík, 31. desember 2003.
Ingimundur Einarsson,
varalögreglustjóri.