Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Margir á nagladekkjum

4. júní 2012

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjátíu ökumenn um helgina en hinir sömu voru allir á bílum á nagladekkjum en það er óheimilt á þessum árstíma. Þeim verður gert að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því kemur þetta verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum. Lögreglan ítrekar enn og aftur þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á.