Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Maður sem lögregla hugðist aðstoða veittist að lögreglumönnum.

20. nóvember 2014

Aðfaranótt mánudagsins 17. nóvember sl. var óskað eftir lögregluaðstoð í heimahús á Ísafirði vegna manns í sjálfsvígshugleiðingum en tilkynningu til lögreglu fylgdu upplýsingar um að maðurinn væri með skurðáverka á handleggjum. Vegna ógnandi tilburða mannsins sem hótaði lögregu með hnífi á lofti og reyndi að leggja til þeirra reyndist nauðsynlegt fyrir lögreglu að vopnbúast en við það róaðist maðurinn og gaf sig á vald lögreglu. Aðstæður lögreglumanna voru viðsjárverðar og mikilvægt að tryggja öryggi þeirra en vægari valdbeitingarúrræði komu ekki að gagni við þessar aðstæður. Farið var með manninn á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hans en að því loknu var hann færður í fangaklefa. Að yfirheyrslum loknum var hann frjáls ferða sinna. Lögregla hefur áður þurft að hafa afskipti af manni þessum vegna ýmissa brota.