Þessi frétt er meira en árs gömul
Lokun vega sem öryggisráðstöfun.
27. desember 2012
Lögreglan, í samráði við Snjóflóðavakt Veðurstofunnar og Vegagerðina, hefur tekið ákvörðun um að banna alla umferð um veginn um Eyrarhlíð. Um er að ræða veginn milli Hnífsdals og Ísafjarðar. Óvissustigi hefur verið lýst yfir á norðanverðum Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu.
Töluverður snjór hefur safnast hlíðum. Veður hefur þó lægt mikið.
Upplýsingar verða sendar á næstu klukkustundum um framvindu mála hvað vaðar lokanir eða opnanir vega.