Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lögreglan stöðvar kannabisræktun á byrjunarstigi.

7. maí 2009

Lögreglan á Eskifirði stöðvaði í gær kannabisræktun á sveitabæ í Berufirði. Miðað við umfang og uppsetningu hefur ætlunin verið að setja af stað stóra og afkastamikla ræktun. Málið er unnið í samvinnu við fíkniefnadeild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.

Að gefnu tilefni skal það tekið fram að eigendur sveitabæjarins tengjast málinu ekki á nokkurn hátt.