Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lögreglan nýtur mikils trausts

8. mars 2010

Lögreglan nýtur mikils trausts hjá almenningi en um það má lesa í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Spurt var um traust til fjórtán stofnana og embætta en 81% aðspurðra sögðust treysta lögreglunni og fékk hún bestu útkomuna að þessu sinni. Háskóli Íslands, sem jafnan hefur fengið bestu niðurstöðuna í þessum mælingum, fékk næstbestu útkomuna, eða 76%, en traust til annarra stofnana í könnuninni var á bilinu 5-70%.

Gallup hefur kannað traust til nokkurra stofnana í meira en hálfan annan áratug en traust almennings til lögreglunnar hefur aldrei verið meira en undanfarin fjögur ár, eða 78-81%. Á sama tíma og lögreglan nýtur mikils trausts hefur dregið úr trausti almennings til ýmissa stofnana undanfarin ár. Smellið hér lesa nánar um Þjóðarpúls Gallup.