Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu - mánaðarleg afbrotatölfræði

8. júní 2026

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt nýja bi-skýrslu sem sýnir mánaðarlega afbrotatölfræði embættisins. Í skýrslunni má finna upplýsingar um fjölda skráðra afbrota á höfuðborgarsvæðinu í hverjum mánuði og samanburð við síðustu 12 mánuði þar á undan. Skýrslan verður uppfærð 5. hvers mánaðar og því um bráðabirgðatölur að ræða, þar sem tilkynningar um afbrot berast oft nokkru eftir að brot eiga sér stað.

Í skýrslunni eru birtar upplýsingar um þróun í helstu málaflokkum er koma á borð lögreglu hverju sinni, eins og t.d. fjölda þjófnaða, innbrota, ofbeldisbrota, kynferðisbrota og fleira. Markmið skýrslunnar er að gera afbrotatölfræði aðgengilega almenningi, auka gagnsæi í starfsemi embættisins og stuðla að betri yfirsýn yfir þróun afbrota á höfuðborgarsvæðinu.

Mánaðarleg afbrotatölfræði