Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Líkamsleifar í Kaldsbaksvík á Ströndum.

18. maí 2013

Seint í gærkveldi barst lögreglunni á Vestfjörðum ábending frá ferðafólki að það hafi komið auga á líkamsleifar, n.t.t. beinagrind í Kaldbaksvík á Ströndum.

Lögreglan fór þegar á vettvang. Kennslanefnd (ID) hefur verið gert viðvart og hafa líkamsleifarnar verið fluttar til rannsóknar hjá nefndinni. Ótímabært er að gefa frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum og kennslanefndarinnar.