Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Líkamsárás í Breiðholti – einn látinn

1. nóvember 2026

Karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt, en tilkynning um málið barst lögreglu skömmu fyrir klukkan hálftvö. Strax var haldið á vettvang, sem var utandyra, og þar reyndust tveir menn vera með alvarlega áverka, að talið er eftir hnífsstungur. Þeir voru fluttir á slysadeild, en skömmu eftir komuna þangað var annar mannanna úrskurðaður látinn. Hinn liggur á gjörgæsludeild og er ástand hans stöðugt.

Lögreglan var með mjög mikinn viðbúnað vegna málsins og hóf þegar leit að árásarmönnunum og voru þrír menn handteknir fljótlega annars staðar í hverfinu í tengslum við rannsókn málsins. Þeir eru í haldi lögreglu og eru allir íslenskir líkt og þeir sem urðu fyrir árásinni.