Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Líkamsárás – gæsluvarðhald til 13. febrúar

9. febrúar 2026

Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 13. febrúar að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á líkamsárás í miðborginni sl. laugardagskvöld. Maðurinn sem er í haldi er grunaður um að hafa stungið annan mann með hnífi. Brotaþoli var færður á slysadeild, en hefur nú verið útskrifaður.