Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Lést í vinnuslysi

20. mars 2026

Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi í Korngörðum í Reykjavík í morgun, en þar varð sprenging í atvinnuhúsnæði. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild og er annar þeirra alvarlega slasaður.

Tilkynning um málið barst lögreglu rétt fyrir klukkan hálfátta og héldu viðbragðsaðilar strax á staðinn. Á vettvangi voru nokkrir aðrir starfsmenn þegar að var komið, en hlúð var að þeim í húsakynnum nærliggjandi fyrirtækis. Þeir reyndust óslasaðir.