Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Leitað að minkum í Mosfellsdal

29. júlí 2026

Nokkur hundruð minkar sluppu frá Dalsbúi í Mosfellsdal snemma í morgun, en tilkynning um málið barst lögreglu klukkan rúmlega sjö. Ekki er fyllilega ljóst hvernig það bar að, en rannsókn lögreglu er á frumstigi. Viðeigandi yfirvöld og eftirlitsstofnanir hafa verið upplýst um málið og hafa strax brugðist við.

Við föngun minkanna verður skotvopnum beitt í Mosfellsdal í dag.
Viðbúið er að íbúar og vegfarendur á svæðinu heyri skothvelli vegna þessa.