Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Leit í Grindavík – formlegri leit lokið

27. október 2026

Fyrr í dag fór fram leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Leitin fór fram á ábyrgð lögreglustjórans á Suðurnesjum og að undangengnu ítarlegu áhættumati, með aðkomu innlendra og erlendra sérfræðinga.

Vettvangsstjórn var virkjuð vegna aðgerðarinnar undir stjórn embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum. Að leitinni komu jafnframt sérfræðingar frá sérsveit ríkislögreglustjóra, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Sigmönnum ehf. og rústabjörgunarhópi Hjálparsveitar skáta í Kópavogi.

Aðgerðin stóð yfir í sjö og hálfa klukkustund og fól meðal annars í sér að tveir leitarmenn sigu niður í sprunguna og framkvæmdu sjónskoðun og leit með rústabjörgunarmyndavélum og ljósum.

Við leitina fundust engar vísbendingar sem varpað gætu ljósi á hvar líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar er að finna.

Með leitaraðgerð dagsins hefur þeim aðgerðum verið lokið sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur unnt að ráðast í á grundvelli fyrirliggjandi áhættumats. Aðrar aðgerðir sem horft hefur verið til þykja of áhættusamar.

Ekki verður ráðist í frekari leitaraðgerðir og telst formlegri leit af hálfu lögreglu lokið.

Ekki verða veittar frekari upplýsingar um málið.