Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Látin eftir umferðarslys

11. desember 2025

Kona um áttrætt er látin eftir alvarlegt umferðarslys sem varð á Suðurlandsbraut í Reykjavík, á móts við Hilton Reykjavik Nordica, sl. mánudag, 8. desember, en tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 9.51. Konan var fótgangandi á leið yfir götuna, á gangbraut, þegar hún varð fyrir bíl, sem var ekið vestur Suðurlandsbraut. Konan var flutt á Landspítalann, en lést þar í gær.

Rannsókn málsins miðar vel en talið er að staða gangbrautarljósanna hafi verið með þeim hætti að rautt ljós hafi verið fyrir akandi umferð þegar slysið varð.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.