Samráð gegn ofbeldi: Landssamráðsfundur um aðgerðir gegn ofbeldi
17. febrúar 2026
Landssamráðsfundur um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess verður haldinn 4. mars nk. á Hilton Reykjavík Nordica að undirlagi Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Embætti ríkislögreglustjóra sér um skipulagningu og framkvæmd fundarins og er undirbúningur þegar hafinn.
Markmið fundarins er að efla þverfaglegt samstarf og deila þekkingu um forvarnir og meðferð ofbeldismála. Sjónarhorn þolenda og leiðir til að fá gerendur til að breyta hegðun sinni til að draga úr ítrekuðum brotum verða í brennidepli.
Fundurinn er opinn öllum en sérstaklega ætlaður fulltrúum ríkis, sveitarfélaga, frjálsra félagasamtaka, rannsóknastofnana og öðrum sem láta sig þessi mál varða.
Skráning er hafin: Landssamráðsfundur gegn ofbeldi 2026 | Ísland.is
Á ofangreindri vefsíðu verður jafnframt hægt að nálgast uppfærðar upplýsingar um fundinn.
„Ofbeldi er samfélagslegt mein sem krefst öflugrar samvinnu allra þeirra sem koma að málaflokknum. Landssamráðsfundurinn er einmitt mikilvægur liður í því og gefur okkur tækifæri til þess að hittast, fræðast, deila reynslu og ræða hvernig við eflum samstarfið og hvað hægt er að gera betur í að vinna gegn ofbeldi í samfélaginu og afleiðingum þess,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.