Lagt hald á kókaín, marijúana og milljónir í reiðufé
4. júlí 2025
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á um hálft kg af kókaíni, fjögur kg af marijúana og á annan tug milljóna króna í reiðufé við húsleitir í umdæminu í vikunni.

Fjórir voru handteknir í þessum aðgerðum, en í þeim var enn fremur stöðvuð kannabisræktun á tveimur stöðum. Fjórmenningarnir eru grunaðir um umfangsmikla og skipulagða sölu og dreifingu fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu, framleiðslu þeirra og peningaþvætti. M.a. sölu fíkniefna í gegnum samfélagsmiðla.
Rannsókn málsins miðar vel, en við aðgerðirnar naut embættið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.