Lagt hald á amfetamín og ketamín – fjórir í gæsluvarðhaldi
1. október 2026
Fjórir karlar voru í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 28. október, á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innflutningi fíkniefna. Þrír mannanna voru handteknir í fyrrihluta september og sá fjórði viku síðar, en málið varðar innflutning á 5 kg af amfetamíni í hraðsendingu frá Þýskalandi.

Þeir eru jafnframt grunaðir um að hafa veitt viðtöku fleiri fíkniefnasendingum undanfarnar vikur og er það einnig til rannsóknar hjá lögreglu. Við húsleitir fundust fíkniefni, sem talið er að tengist eldri sendingum, m.a. 1 kg af ketamíni. Fjórmenningarnir voru allir handteknir í Reykjavík og voru í fyrstu úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Stefnt er að því að ljúka rannsókninni fljótlega, en í framhaldinu verður málið sent til embættis héraðssaksóknara.