Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kyningarfundur á Hvolsvelli vegna Kötlu

16. mars 2006

Almannavarnanefnd Rangárvallasýslu hefur boðað til opins fundar í Félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli laugardaginn 18. mars n.k. kl. 10:00 fyrir íbúa og húseigendur í nágrenni Mýrdalsjökuls. Á fundinum verður kynnt hættumat vegna jökulflóða, skipulag almannavarna og viðbrögð almennings vegna hugsanlegs eldgoss og jökulhlaups því tengdu. Þetta er síðasti fundur í röð fjölda annarra áður auglýstra funda sem haldnir hafa verið í Rangárþingi síðustu daga á vegum almannavarnanefndar Rangárvallasýslu. Eigendur sumar- og frístundahús eru sérstaklega hvattir til að mæta.