Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kynferðisbrotamál.

18. febrúar 2013

Síðastliðinn föstudag handtók lögreglan á Vestfjörðum karlmann og framkvæmdi húsleit á heimili hans og vinnustað. Lögreglunni höfðu borist kærur frá fjórum aðilum vegna meintra kynferðisbrota mannsins. Honum var sleppt að lokinni yfirheyrslu. Rannsókn málsins er í fullum gangi. Ekki er hægt að gefa frekari upplýsingar um það á þessu stigi.