Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kynferðisbrot – úrskurðaður í síbrotagæslu

23. janúar 2013

Karl á sjötugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna síbrotagæslu að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, eða til 20. febrúar. Hann unir úrskurði héraðsdóms.

Maðurinn hefur verið í haldi lögreglu frá 8. janúar sl. en þá var hann færður til yfirheyrslu vegna rannsóknar á kynferðisbrotum. Daginn eftir var hann úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.