Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kynferðisbrot – gæsluvarðhald til 18. október

14. október 2019

Karlmaður á fertugsaldri var á laugardag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald, eða til 18. október, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á ætluðu kynferðisbroti. Maðurinn var handtekinn í heimahúsi í umdæminu um helgina eftir að tilkynning barst um málið.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.