Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Karl Steinar ráðinn yfirlögregluþjónn alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra

4. desember 2020

Karl Steinar Valsson hefur verið ráðin yfirlögregluþjónn alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra.

Karl Steinar á langan og farsælan 35 ára feril innan lögreglunnar. Hann hefur verið stjórnandi ýmissa eininga frá 1997 nú síðast yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar áður starfaði hann sem tengslafulltrúi Íslands hjá Europol ár árunum 2014-2018 þar sem hann var meðal annars ábyrgur fyrir stefnumótun og framtíðarstefnu Íslands á sviði samvinnu við aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Auk lögreglumenntunar hefur Karl Steinar fjölbreytta menntun að baki, meðal annars í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun, MBA frá Háskólanum í Reykjavík sem og stjórnendaþjálfun frá Bandarísku alríkislögreglunni.

Karl Steinar hefur störf hjá embætti ríkislögreglustjóra 1. janúar 2021.

Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra.