Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í Kópavogi

7. nóvember 2011

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Kópavogi á laugardag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á tæplega 20 kannabisplöntur, auk græðlinga, og ýmsan búnað tengdan starfseminni.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.