Fara beint í efnið

Þetta vefsvæði er í vinnslu. Opinber vefur er

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Ítrekaður hraðakstur

27. mars 2025

Full ástæða er til að minna þá ökumenn á sem eiga leið um Austurberg í Reykjavík að draga úr hraðanum.

Logreglan-umferd-2

Við hraðamælingar þar fyrr í vikunni, á móts við íþróttasvæði Leiknis, var brothlutfallið 58%, en leyfður hámarkshraði í Austurbergi er 30.

Þá var meðalhraði hinna brotlegu 47 km/klst þegar 92 af 160 ökumönnum voru staðnir að hraðakstri.

Sá sem hraðast ók mældist á 72, en viðkomandi á yfir höfði sér 90 þúsund kr. sekt og sviptingu ökuréttinda í þrjá mánuði. Einn til viðbótar ók litlu hægar, eða á 67, og bíður einnig sviptingu ökuréttinda í þrjá mánuði.

Þess má enn fremur geta að við hraðamælingar í Austurbergi sl. haust var brotahlutfallið líka 58%, sem telst mjög hátt. Þá var sömuleiðis einn sviptur ökuréttindum vegna hraðaksturs. Við Austurberg er mikið um gangandi og hjólandi vegfarendur enda er bæði grunnskóli og fjölbrautaskóli við götuna, auk íþróttahúss og sundlaugar.

Lögreglan minnir ökumenn á að fara varlega, sýna tillitssemi og virða hámarkshraða. Það á alltaf við, en hraðakstur á sér stað, því miður, alls staður í umdæminu árið um kring og því þarf að breyta.