Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Innihéldu ekki fíkniefni

9. ágúst 2024

Engin fíkniefni reyndust vera í pakkningum sem fundust við tollskoðun um borð í skemmtibáti á Höfn í Hornafirði í gær. Nokkur viðbúnaður var uppi vegna grunsemda um möguleg fíkniefni, en að málinu komu lögregluembættin á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu, auk tollgæslunnar. Pakkningarnar voru fluttar til Reykjavíkur til frekari skoðunar, sem leiddi í ljós að þær innihéldu ekki fíkniefni líkt og áður sagði. Tveir skipverjar voru yfirheyrðir vegna málsins, en þeir eru nú frjálsir ferða sinna.