Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Innbrot í bíla

6. nóvember 2009

Brotist var inn í nokkra bíla í Reykjavík og Hafnarfirði í gær en sjö slíkar tilkynningar bárust lögreglunni. Þess má geta að GPS-tækjum var stolið úr þremur þeirra en fjölda slíkra tækja hefur verið stolið úr bílum á höfuðborgarsvæðinu upp á síðkastið. Lögreglan ítrekar að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.