Innbrot á byggingarsvæðum
16. mars 2026
Nokkuð hefur verið um innbrot á byggingarsvæði í umdæminu það sem af er ári. Helst er verið að taka ófrjálsri hendi verkfæri og byggingarefni.

Lögregla hefur aukið til muna eftirlit með byggingasvæðum og hvetur þá sem upplýsingar geta veitt um þessi mál að hafa samband við lögreglu.