Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur við grunnskóla – 1.137 óku of hratt

25. september 2025

Þegar grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu hefja göngu sína á nýjan leik eftir sumarleyfi er lögreglan þar jafnan við umferðareftirlit og svo var einnig þetta árið. T.a.m. hefur sérstakur myndavélabíll embættisins mælt hraða ökutækja við fjölda grunnskóla, eða í næsta nágrenni þeirra (gönguleiðir skólabarna) víða í umdæminu núna í september. Myndavélabílinn var einnig á ferðinni við grunnskólana í maí, en ljóst er að ökumenn þurfa að standa sig miklu betur þegar kemur að því að virða leyfðan hámarkshraða.

Við þessar hraðamælingar í maí og september voru samtals 1.137 ökumenn staðnir að hraðakstri í og við grunnskólana og voru hinir sömu sektaðir fyrir vikið. Í grófasta tilvikinu var um ræða bifreið, sem var ekið á 70 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 30. Um var að ræða alls 38 hraðamælingar og náði vöktunin til 5.048 ökutækja. Brothlutfallið var mishátt, eða lágt, eftir götum en að meðaltali ók rúmlega fimmtungur ökumanna of hratt hverju sinni og það er alls ekki góð niðurstaða. Af þessum fyrrnefndu 1.137 ökumönnum voru 984 þeirra staðnir að hraðakstri þar sem leyfður hámarkshraði er 30, en þar var meðalhraði hinna brotlegu 43,5 km/klst. Hinir 153 ökumennirnir óku að meðaltali á 52,5 þar sem er 40 km hámarkshraði og fengu þeir sömuleiðis sekt.

Lögreglan minnir ökumenn, enn og aftur, á að aka varlega, ekki síst í námunda við skóla enda margir þar á ferli, m.a. nýir vegfarendur sem hófu skólagöngu í sumarlok.