Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur í Stekkjarbakka í Reykjavík

27. janúar 2025

Brot 33 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka, við Heimahvamm, í austurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 482 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.