Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur í júlí 2025

11. júlí 2025

Hraðakstur á Vesturlandsvegi í Reykjavík - 2. Júlí 2025 Brot 109 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í dag.

Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í austurátt, við Suðurlandsveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.066 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Átta óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 105.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Hraðakstur á Kringlumýrarbraut í Reykjavík - 2. Júlí 2025

Brot 322 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í norðurátt, á milli Miklubrautar og Háaleitsbrautar á móts við Álftamýri 24-30. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 783 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 49 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 74, en sá og ellefu aðrir ökumenn eiga yfir höfði sér sviptingu ökuréttinda vegna hraðaksturs á þessum vegarkafla.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Hraðakstur á Arnarnesvegi í Kópavogi - 3. Júlí 2025

Brot 76 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Sólarsölum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 300 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Hraðakstur á Norðurströnd á Seltjarnarnesi - 3. Júlí 2025

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, við Austurströnd. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 170 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík - 7. Júlí 2025

Brot 115 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 30. júní til mánudagsins 7. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á sjö sólarhringum fóru 28.888 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 98. Átta ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.

Hraðakstur á Kringlumýrarbraut í Reykjavík - 7. Júlí 2025

Brot 246 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, á milli Miklubrautar og Háaleitsbrautar á móts við Bólstaðarhlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 648 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 76, en sá og sjö aðrir ökumenn eiga yfir höfði sér sviptingu ökuréttinda vegna hraðaksturs á þessum vegarkafla.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Hraðakstur í Urriðaholtsstræti í Garðabæ - 9. Júlí 2025

Brot 27 ökumanna voru mynduð í Urriðaholtsstræti í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Urriðaholtsstræti í austurátt, að Dyngjugötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 281 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Urriðaholtsstræti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík - 9. Júlí 2025

Brot 100 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í norðurátt, að Súðarvogi. Á einni klukkustund, í gærkvöld, fóru 428 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Hraðakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði - 10. Júlí 2025

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Straum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 685 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 72.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Hraðakstur á Reykjanesbraut í Reykjavík - 10. Júlí 2025

Brot 123 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Garðheima. Á einni klukkustund, í gærkvöld, fóru 1.163 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 127.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Hraðakstur á Suðurlandsvegi í Reykjavík - 11. Júlí 2025

Brot 60 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í norðurátt, að Vesturlandsvegi, á móts við Bílamiðstöðina Krókhálsi. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 828 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 116.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík - 11. Júlí 2025

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á móts við Hjálpræðisherinn. Á hálfri klukkustund, í gærkvöld, fóru 500 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 96 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 134.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á móts við Hjálpræðisherinn. Á hálfri klukkustund, í gærkvöld, fóru 499 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 110.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Brot 42 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 7. júlí til föstudagsins 11. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á fjórum sólarhringum fóru 15.201 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.