Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Suðurnesjum

6. janúar 2017

Lögreglan á Suðurnesjum kærði nokkra ökumenn fyrir of hraðan akstur í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 146 km. hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Viðurlög við umferðarlagabrotinu eru 130.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Þá voru höfð afskipti af fáeinum ökumönnum vegna gruns um vímuefnaakstur. Einn þeirra reyndist, auk vímuefnaakstursins vera með fíkniefni í vörslum sínum.