Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Laugarnesvegi í Reykjavík

18. nóvember 2016

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Laugarnesvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugarnesveg í norðurátt, á móts við Laugarnesveg 64. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Laugarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.