Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Kalkofnsvegi í Reykjavík

11. nóvember 2019

Brot 58 ökumanna voru mynduð á Kalkofnsvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kalkofnsveg í norðurátt, við Kolaport bílastæðahús. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 410 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar á Kalkofnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.