Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu

29. október 2025

Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Suðurlandsvegi og Miklubraut.

23.10 2025

Brot 62 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Suðurlandsveg, við Hádegismóa. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 736 ökutæki þessa akstursleið og því óku 8% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 96 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 115.

27.10 2025

Brot 455 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 23. – 27. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 25.742 ökutækjum ekið þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökmenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 126. Ellefu ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.