Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
9. mars 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Vesturlandsvegi, Hafnarfjarðarvegi, Sævarhöfða og Listabraut.

2.3 2026
Brot 386 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 23. febrúar - 2. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 39.455 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100. Tuttugu og einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
2.3 2026
Brot 59 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Vesturlandsveg, við Vallá. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 257 ökutæki þessa akstursleið og því óku 23% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 69 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði (vegna framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 91.
3.3 2026
Brot 88 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Hafnarfjarðarveg, að Arnarnesvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 664 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 116.
4.3 2026
Brot 50 ökumanna var myndað á Sævarhöfða í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Sævarhöfða, að Malarhöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 202 ökutæki þessa akstursleið og því óku 25% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.
Brot 89 ökumanna voru mynduð á Listabraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Listabraut, að Háaleitisbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 196 ökutæki þessa akstursleið og því óku 45% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.