Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
9. febrúar 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Breiðholtsbraut, Reykjavegi, Sæbraut, Arnarnesvegi og Ægisíðu.

2.2 2026
Brot 606 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 27. janúar - 2. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 40.211 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 118. Sex ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
3.2 2026
Brot 21 ökumanns var myndað á Breiðholtsbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Breiðholtsbraut, að Arnarnesvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 569 ökutæki þessa akstursleið og því óku 4% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði v/framkvæmda. Sá sem hraðast ók mældist á 72.
4.2 2026
Brot 19 ökumanna voru mynduð á Reykjavegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Reykjaveg, að Kirkjuteig. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 152 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.
Brot 53 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Sæbraut, við Kirkjusand. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 660 ökutæki þessa akstursleið og því óku 8% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 89.
5.2 2026
Brot 77 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Arnarnesveg, að Sólsölum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 335 ökutæki þessa akstursleið og því óku 23% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.
Brot 4 ökumanna voru mynduð á Ægisíðu í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Ægisíðu, á móts við Ægisíðu 55. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 191 ökutæki þessa akstursleið og því óku 2% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.