Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu

8. desember 2025

Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Austurbergi, Suðurlandsvegi, Borgavegi og Vesturlandsvegi.

1.12 2025

Brot 190 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 28. nóvember - 1. desember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 15.289 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94. Fjórtán ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

3.12 2025

Brot 66 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Austurberg, við Leiknisvöll. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 125 ökutæki þessa akstursleið og því óku 53% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Suðurlandsveg, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 348 ökutæki þessa akstursleið og því óku 6% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 125.

4.12 2025

Brot 66 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Borgavegi, að Strandvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 195 ökutæki þessa akstursleið og því óku 28% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Brot 142 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Vesturlandsveg, við Korputorg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 811 ökutæki þessa akstursleið og því óku 18% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 120.