Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
7. október 2025
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Suðurlandsvegi, Lindarbraut, Hafnarfjarðarvegi, Grensásvegi, Miklubraut og Arnarnesvegi.

30.9 2025
Brot 48 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Suðurlandsveg, við Sandskeið. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 357 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 126.
1.10 2025
Brot 1 ökumanns var myndað á Lindarbraut á Seltjarnarnesi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Lindarbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 54 ökutæki þessa akstursleið og því óku 2% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hins brotlega var 51 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði.
2.10 2025
Brot 105 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Hafnarfjarðarveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.557 ökutæki þessa akstursleið og því óku 7% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 107.
Brot 51 ökumanns var myndað á Grensásvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Grensásveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 255 ökutæki þessa akstursleið og því óku 20% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.
3.10 2025
Brot 209 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 29. september - 3. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 63.357 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106. Fjórtán ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
3.10 2025
Brot 76 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Arnarnesveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 375 ökutæki þessa akstursleið og því óku 20% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79 km hraða.