Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
5. maí 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Hringbraut, Rofabæ, Baugshlíð, Vesturlandsvegi, Gagnvegi og Skeiðarvogi.

27.4 2026
Brot 48 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Hringbraut, við Vesturbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 346 ökutæki þessa akstursleið og því óku 14% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.
Brot 18 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Hringbraut, við Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 109 ökutæki þessa akstursleið og því óku 17% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.
28.4 2026
Brot 14 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Rofabæ, við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 113 ökutæki þessa akstursleið og því óku 12% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 44.
Brot 17 ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Baugshlíð, við Lágafellsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 129 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.
29.4 2026
Brot 61 ökumanns var myndað á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Vesturlandsveg, við Vallá. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 301 ökutæki þessa akstursleið og því óku 20% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 68 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði (vegna framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 91.
Brot 30 ökumanna voru mynduð á Gagnvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Gagnveg, að Garðhúsum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 73 ökutæki þessa akstursleið og því óku 41% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.
30.4 2026
Brot 31 ökumanns var myndað í Skeiðarvogi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Skeiðarvog, að Karfavogi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 133 ökutæki þessa akstursleið og því óku 23% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.