Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
30. mars 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Suðurströnd, Vesturlandsvegi, Sogavegi, Skógarseli og Suðurlandsvegi.

23.3 2026
Brot 516 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 16. - 23. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 45.137 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 96. Tuttugu og þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
23.3 2026
Brot 57 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Suðurströnd, við Íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 112 ökutæki þessa akstursleið og því ók 51% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.
24.3 2026
Brot 94 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Vesturlandsveg, við Vínlandsleið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.456 ökutæki þessa akstursleið og því óku 6% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 109.
Brot 58 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Sogaveg, við Sogaveg 222. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því óku 67% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.
25.3 2026
Brot 80 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Skógarsel, við Þverársel. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 142 ökutæki þessa akstursleið og því óku 56% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.
Brot 58 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Suðurlandsveg, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 385 ökutæki þessa akstursleið og því óku 15% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 121.