Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
3. mars 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Norðurströnd, Vesturlandsvegi, Víkurvegi, Hringbraut, Vínlandsleið og Arnarbakka.

23.2 2026
Brot 1.539 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 9. - 23. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 95.600 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 158. Þrjátíu og tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
23.2 2026
Brot 34 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Norðurströnd, við Austurströnd. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 147 ökutæki þessa akstursleið og því óku 23% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.
24.2 2026
Brot 67 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Vesturlandsveg, við Skálatún. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 660 ökutæki þessa akstursleið og því óku 10% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108.
Brot 79 ökumanna voru mynduð á Víkurvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Víkurveg, að Hallsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 351 ökutæki þessa akstursleið og því óku 23% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 85.
25.2 2026
Brot 48 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Hringbraut, við Vesturbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 296 ökutæki þessa akstursleið og því óku 19% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 55 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.
Brot 18 ökumanna voru mynduð á Vínlandsleið í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Vínlandsleið, við Vínlandsleið 2-4. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 202 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.
26.2 2026
Brot 19 ökumanna voru mynduð í Arnarbakka. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Arnarbakka, við Dvergabakka. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 76 ökutæki þessa akstursleið og því óku 25% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.