Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
23. mars 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Þingvallavegi, Geirsgötu, Álftanesvegi, Reykjavíkurvegi, Reykjanesbraut, Bríetartúni og Fífuhvammsvegi.

16.3 2026
Brot 541 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík frá 9. - 16. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 46.292 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 118. Tíu ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
16.3 2026
Brot 6 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Þingvallaveg, við Mosskóga. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 134 ökutæki þessa akstursleið og því óku 4% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 87 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 109.
Brot 21 ökumanns var myndað á Geirsgötu í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Geirsgötu, við Kolaport. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 376 ökutæki þessa akstursleið og því óku 6% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 52 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.
17.3 2026
Brot 7 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Álftanesveg, við Garðahraun. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 176 ökutæki þessa akstursleið og því óku 7% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 82 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 87.
Brot 119 ökumanna var myndað á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Reykjavíkurveg, að Dalshrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 484 ökutæki þessa akstursleið og því óku 25% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.
18.3 2026
Brot 82 ökumanna var myndað á Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Reykjanesbraut, við Straum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 560 ökutæki þessa akstursleið og því óku 15% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 147.
Brot 11 ökumanna voru mynduð í Bríetartúni í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Bríetartún, að Þórunnartúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 100 ökutæki þessa akstursleið og því óku 11% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.
20.3 2026
Brot 48 ökumanna var myndað á Fífuhvammsvegi í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Fífuhvammsveg, að Hlíðardalsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 361 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.