Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
23. júní 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Hafnarfjarðarvegi, Suðurströnd, Breiðholtsbraut, Borgavegi, Þingvallavegi og Suðurlandsvegi.

15.6 2026
Brot 29 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Hafnarfjarðarveg, við Arnarneslæk. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 628 ökutæki þessa akstursleið og því óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 112.
Brot 68 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Suðurströnd, við Íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 149 ökutæki þessa akstursleið og því óku 46% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.
18.6 2026
Brot 57 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Breiðholtsbraut, að Arnarnesvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 524 ökutæki þessa akstursleið og því óku 11% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði (vegna framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 79.
Brot 62 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Borgaveg, að Víkurvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 202 ökutæki þessa akstursleið og því ók 31% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.
19.6 2026
Brot 4 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Þingvallaveg, við Mosskóga. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 307 ökutæki þessa akstursleið og því ók 1% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 89.
Brot 64 ökumanna voru myndað á Suðurlandsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Suðurlandsveg, að Vesturlandsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 724 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108.