Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
21. janúar 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Arnarnesvegi, Flókagötu, Suðurlandsvegi, Baugshlíð og Vesturlandsvegi.

12.1 2026
Brot 554 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 5. - 12. janúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 44.831 ökutæki ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 132. Sautján ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
13.1 2026
Brot 26 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Arnarnesveg, að Salavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 277 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.
Brot 9 ökumanna voru mynduð á Flókagötu í Hafnarfirði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Flókagötu, að Hraunbrún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 64 ökutæki þessa akstursleið og því óku 14% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.
14.1 2026
Brot 19 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Suðurlandsveg, að Vesturlandsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 548 ökutæki þessa akstursleið og því óku 3% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 112.
Brot 43 ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Baugshlíð, við Lágafellsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því óku 38% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.
15.1 2026
Brot 121 ökumanns var mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Vesturlandsveg, við Vínlandsleið. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.370 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 114.