Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu

17. nóvember 2025

Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Eiðsgranda, Breiðholtsbraut, Nauthólsvegi, Sæbraut, Reykjavegi, Skyggnisbraut og Miklubraut.

10.11 2025

Brot 561 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík frá 3. - 10. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 46.755 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 111. Fimmtán ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

10.11 2025

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Eiðsgranda, við Seilugranda. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 365 ökutæki þessa akstursleið og því óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 69.

12.11 2025

Brot 185 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Breiðholtsbraut, að Arnarnesvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 391 ökutæki þessa akstursleið og því óku 47% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði vegna framkvæmda. Sá sem hraðast ók mældist á 71. 15 ökutækjum var ekið á yfir 60 km hraða.

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Nauthólsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Nauthólsveg, við Isavia. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 150 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.

13.11 2025

Brot 48 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Sæbraut, við Laugarásbíó. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 526 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 91.

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Reykjavegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Reykjaveg, að Kirkjuteig. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 178 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þeir sem hraðast óku mældist á 55 og 56 km hraða.

14.11.2025

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Skyggnisbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Skyggnisbraut, við Skyggnisbraut 10. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 81 ökutæki þessa akstursleið og því óku 27% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

14.11 2025

Brot 305 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 10. - 14. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 28.003 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 98. Þrettán ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.