Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
12. janúar 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Bústaðavegi, Álfheimum, Reykjanesbraut, Mýrargötu, Þingvallavegi, Breiðholtsbraut, Lækjargötu og Sæbraut.

5.1 2026
Brot 786 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 29. desember - 5. janúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 37.854 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 118. Átján ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
5.1 2026
Brot 66 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Bústaðaveg, að Hringbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 552 ökutæki þessa akstursleið og því óku 12% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.
6.1 2026
Brot 32 ökumanna voru mynduð í Álfheimum í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Álfheima, gegnt Álfheimum 23. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 106 ökutæki þessa akstursleið og því óku 30% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.
Brot 154 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Reykjanesbraut, við Ásbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 970 ökutæki þessa akstursleið og því óku 16% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 96 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 127.
7.1 2026
Brot 14 ökumanna voru mynduð á Mýrargötu í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Mýrargötu, að Ægisgötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 261 ökutæki þessa akstursleið og því óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.
Brot 5 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Þingvallaveg, við Mosskóga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því óku 10% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90.
8.1 2026
Brot 94 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Breiðholtsbraut, gegnt Suðurfelli. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 527 ökutæki þessa akstursleið og því óku 18% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði (vegna framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 80.
Brot 23 ökumanna voru mynduð í Lækjargötu í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Lækjargötu, að Vonarstræti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 223 ökutæki þessa akstursleið og því óku 10% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.
9.1 2026
Brot 24 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Sæbraut, að Klettagörðum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 471 ökutæki þessa akstursleið og því óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.