Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
21. maí 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Suðurgötu, Fossvogsvegi, Hamrahlíð, Nesvegi, Álfheimum, Lyngási og Vesturbergi.

11.5 2026
Brot 68 ökumanna voru mynduð á Suðurgötu í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Suðurgötu, við Suðurgötu 31. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 185 ökutæki þessa akstursleið og því óku 37% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.
Engin brot voru mynduð á Fossvogsvegi í Reykjavík þegar fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Fossvogsveg, við framkvæmdasvæði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða.
12.5 2026
Brot 12 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Hamrahlíð. að Bogahlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 85 ökutæki þessa akstursleið og því óku 14% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.
Brot 30 ökumanna voru mynduð á Nesvegi á Seltjarnarnesi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Nesveg, við Eiðismýri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 160 ökutæki þessa akstursleið og því óku 19% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.
13.5 2026
Brot 26 ökumanna voru mynduð í Álfheimum í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Álfheima, við Álfheima 19. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 111 ökutæki þessa akstursleið og því óku 23% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.
Brot 29 ökumanna voru mynduð í Lyngási í Garðabæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Lyngás, við Lyngás18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 56 ökutæki þessa akstursleið og því óku 52% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.
15.5 2026
Brot 31 ökumanns var myndað í Vesturbergi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Vesturberg, við Vesturberg 81. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því óku 53% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 69.