Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
5. október 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Tunguvegi, Víkurvegi, Suðurlandsvegi, Vínlandsleið, Vesturlandsvegi, Stekkjarbakka, Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut.

28.9 2026
Brot 193 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 21. – 28. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 45.879 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 82 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 96. Átta ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 19 ökumanna var mynduð á Tunguvegi í Mosfellsbæ Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Tunguveg, að Kvíslartungu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 54 ökutæki þessa akstursleið og því óku 35% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.
29.9 2026
Brot 44 ökumanna voru mynduð á Víkurvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Víkurveg, að Hallsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 281 ökutæki þessa akstursleið og því óku 16% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.
Brot 33 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Suðurlandsveg, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 375 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 115.
30.9 2026
Brot 9 ökumanna voru mynduð á Vínlandsleið í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Vínlandsleið, við Vínlandsleið 2-4. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 100 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.
Brot 12 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Vesturlandsveg, við Saltvík. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 253 ökutæki þessa akstursleið og því óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 107 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 126.
1.10 2026
Brot 31 ökumanns var myndað á Stekkjarbakka í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Stekkjarbakka, að Grænastekk. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 226 ökutæki þessa akstursleið og því óku 14% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.
Brot 61 ökumanns var myndað á Kringlumýrarbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Kringlumýrarbraut, við Sigtún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 688 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94.
2.10 2026
Brot 35 ökumanna voru myndað á Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Reykjanesbraut, við Straum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 635 ökutæki þessa akstursleið og því óku 6% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 119.