Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
29. september 2026
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Bústaðavegi, Arnarnesvegi, Flatahrauni, Sæbraut, Norðurströnd og í Skógaseli.

21.9 2026
Brot 341 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík frá 8. – 21. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 79.787 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 155. Tuttugu og einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 155 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Bústaðaveg, að Litluhlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 695 ökutæki þessa akstursleið og því óku 22% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 91.
22.9 2026
Brot 83 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Arnarnesveg, við Urðarhvarf. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 455 ökutæki þessa akstursleið og því óku 18% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.
23.9 2026
Brot 34 ökumanna voru mynduð á Flatahrauni í Hafnarfirði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Flatahraun, við Kaplakrika. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 283 ökutæki þessa akstursleið og því óku 12% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.
Brot 45 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Sæbraut, að Höfðatúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 632 ökutæki þessa akstursleið og því óku 7% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 96.
24.9 2026
Brot 12 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Norðurströnd, við Austurströnd. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 110 ökutæki þessa akstursleið og því óku 11% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.
Brot 33 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Skógarsel, við ÍR-völlinn. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 217 ökutæki þessa akstursleið og því óku 15% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 52 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.